Myndskeið: Kynning á Íslandi

Dæmi um Kynningarmyndskeið: Íslandskynning

Hér var búið til dæmi um kynningu á Íslandi, til að sýna hvað hægt er að gera.

Útgáfurnar eru á níu tungumálum: Íslensku, ensku, frönsku, pólsku, lettnesku, litháensku, rúmensku, filippeyísku og taílensku. Þetta eru tungumál erlendra hópa sem eru algengir á íslenskum vinnumarkaði. 

Ensk útgáfa (Lifandi grunnur)

Bakgrunnar: Marglitir og ljósmyndir.

Play Video

Íslensk útgáfa (Lifandi grunnur)

Bakgrunnar: Íslenskir fánalitir og ljósmyndir.

Play Video

Pólsk útgáfa (Lifandi grunnur)

Bakgrunnar: Fjólublátt og blátt, og ljósmyndir.

Play Video

Frönsk útgáfa (Lifandi grunnur)

Bakgrunnar: Marglitir og ljósmyndir.

Play Video

Lettnesk útgáfa (Lifandi grunnur)

Bakgrunnar: Beige og ljósmyndir.

Play Video

Lettnesk útgáfa (abstrakt bakgrunnur)

Bakgrunnar: Beige og abstrakt.

Play Video

Litháensk útgáfa (Lifandi grunnur)

Bakgrunnar: Fjólublátt og blátt, og ljósmyndir.

Play Video

Litháensk útgáfa (abstrakt bakgrunnur)

Bakgrunnar: Fjólublátt og blátt, og abstrakt.

Play Video

Tælensk útgáfa (Lifandi grunnur)

Bakgrunnar: Beige og ljósmyndir.

Play Video

Filippeyísk útgáfa (Lifandi grunnur)

Bakgrunnar: Blágrátt, og ljósmyndir.

Play Video

Rúmensk útgáfa (Lifandi grunnur)

Bakgrunnar: Blágrátt, og ljósmyndir.

Play Video

Rúmensk útgáfa (abstrakt bakgrunnur)

Bakgrunnar: Blágrátt, og abstrakt.

Play Video

Hágæðaútgáfur (high quality)

Hér undir sérðu myndskeið sem eru gerði í hæstu gæðum (deep fake, full high definition). Aðgangur að þessari þjónustu er takmarkaður þessa stundina. Aðra þjónustuna er ég að reyna að semja við (hágæðagrunnur 1, HQ1), en get þó unnið takmarkað magn af efni í hverjum mánuði. Hin þjónustan (hágæðagrunnur  2, HQ2, sjá á síðunni fyrir hótelmyndskeiðin) er ég með fullan samning við, en hún býður bara að gera myndskeið á ensku, en ætlunin er að bjóða fleiri tungumál bráðlega. Tekið skal fram að útgáfurnar hér að ofan sem kallast “lifandi grunnur” eru gerðar í upplausn 1280×720, en ætlun þeirra er að bjóða í full high definition, og ættu gæðin þar þá að verða betri. Þar get ég unnið nokkurnveginn ótakmarkað efni. Athugið að það að gera svona myndskeið er svo ný tækni að fremstu fyrirtækin í þessu eru ekki komin með fulla þjónustu. Þessar upplýsingar verða uppfærðar um leið og nýjar upplýsingar eru fyrir hendi.

Sjá má meiri upplýsingar um kynnana (persónur, avatars) á upplýsingasíðunni.

Ensk útgáfa (hágæða grunnur 1)

Bakgrunnar: Marglitir og ljósmyndir.

Play Video

Pólsk útgáfa (hágæða grunnur 1)

Bakgrunnar: Fjólublátt og blátt, og ljósmyndir.

Play Video

Að búa til myndskeið með kynni hefur hingað til kallað á umstang og fjárfestingu. Nauðsynlegt hefur verið að hafa upptökustúdíó með öllum búnaði, grænan bakgrunn, og leikara sem les textann af teleprompter. Ef ætlunin hefur verið að gera myndskeið á nokkrum tungumálum þarf annað hvort kynni með víðtæka tungumálakunnáttu, eða marga kynna.

Nýja tæknin sem Grípandi notar opnar möguleika á að gera hluti á hagkvæman hátt, sem fæstir gátu látið sig dreyma um. Manneskjurnar og talið í myndskeiðunum eru tölvuunnin með hjálp gervigreindar, og kostnaður er miklu lægri en áður hefði verið.

Dæmi um Kynningarmyndskeið: Íslandskynning

Hér var búið til dæmi um kynningu á Íslandi, til að sýna hvað hægt er að gera.

Útgáfurnar eru á níu tungumálum: Íslensku, ensku, frönsku, pólsku, lettnesku, litháensku, rúmensku, filippeyísku og taílensku. Þetta eru tungumál erlendra hópa sem eru algengir á íslenskum vinnumarkaði.

Athugið að textinn var þýddur með hjálp Google translate og var ekki prófarkalesinn af þýðanda í viðkomandi tungumáli, enda er hér bara um dæmi um myndskeið að ræða til að sýna.

Mismunandi bakgrunnar

Í þessum myndskeiðum er skipt út bakgrunnum til að sýna hvernig hægt er að hafa mismunandi útlit.

Hefurðu áhuga á að láta vinna myndskeið?

Hafðu endilega samband – ræðum málin. 

Síminn er 773 7100

tölvupóstur er video@gripandi.com

Einnig má senda skilaboð á Facebooksíðu: facebook.com/gripandi

Dæmi um myndskeið

Hreyfigrafík

Einföld og ódýr myndskeið með hreyfigrafík (motion graphics). Byggð á fyrirfram tilbúnum sniðum sem má aðlaga. 96% af Fortune 500 fyrirtækjum í USA nota lausnina sem Grípandi býður.

Sjáðu dæmi hér

Dæmi: Íslandsupplýsingar

Hér var búið til dæmi um kynningu á Íslandi. Útgáfurnar eru á níu tungumálum: Íslensku, ensku, frönsku, pólsku, lettnesku, litháensku, rúmensku, filippeyísku og taílensku. “Þulirnir” og talið eru tölvugerð.

Sjáðu myndskeiðin hér

Dæmi : Ímyndað hótel

Gerð voru stutt kynningarmyndskeið fyrir ímyndað hótel, “The Best Hotel”, á tíu tungumálum: Íslensku, ensku,  þýsku, spænsku, dönsku, sænsku, arabísku, hindí, kínversku og japönsku.

Sjáðu myndskeiðin hér

Gagnvirk myndskeið

Þegar myndskeið eru gagnvirk (e. interactive) þá stýrir áhorfandinn ferðinni, og velur hvaða kafla skal næst skoða úr valkostum. Þetta getur aukið áhorf og lækkað kostnað við að ná markmiði. 

Fáðu að vita meira

Dæmi: Aðlagað myndskeið

Hér voru tekin nokkur myndskeið um endurvinnslu sem voru upprunalega á grísku með enskum undirtexta. Íslenskur texti var gerður, íslenskt og enskt tal tekið upp, og skipt um tal og tónlist.

Sjáðu dæmi úr myndskeiðum hér

Dæmi: Matvæli

Væntanlegt sýnishorn um myndskeið sem er gert fyrir ímyndaðan framleiðanda að matvælum, til að auka viðskipti eða fræða, á nokkrum tungumálum. (Smelltu til að sjá eldra dæmi frá 2009).

Sjá myndskeið frá 2009

Hátæknibúnaður

Sýnishorn um myndskeið sem er gert um ímyndaðan hátækni tækjabúnað. Þetta gæti verið myndskeið til að ná í viðskipti, eða leiðbeiningar um notkun, á nokkrum tungumálum.

Væntanlegt

Snyrtivara

Sýnishorn um myndskeið sem er gert um ímyndað snyrtivörumerki. Gert í stærðarhlutföllum 16:9, 1:1 og 9:16 fyrir Youtube, Facebook, Facebook stories, Instagram, Pinterest, Tiktok o.s.frv.

Væntanlegt

Fyrri verk

Grípandi hóf starfsemi árið 2009, svo það er 12 ára reynsla undir beltinu.

Sjáðu fyrri verk hér